Baðkob ehf

Baðkob ehf

Heildarlausnir í pípulögnum

Við bjóðum upp á alhliða pípulagningaþjónustu fyrir heimili og fyrirtæki. Teymið okkar sér um allt frá viðhaldi til flókinna lausna með fagmennsku, áreiðanleika og persónulegri þjónustu að leiðarljósi.

Traust og fagleg pípulagningaþjónusta fyrir heimili og fyrirtæki.
Baðkob ehf – Faglegur pípulagningamaður við vinnu í Reykjavík
Um Baðkob

Fremstir í okkar fagi

Baðkob ehf. er alhliða pípulagningafyrirtæki sem leggur sig fram við að þjónusta viðskiptavini á sem bestan hátt á öllum sviðum pípulagninga. Við sérhæfum okkur einnig í golfhitafræsingum og búum yfir öflugum tækjabúnaði sem leyfir okkur að þjónusta viðskiptavini á sem hraðasta og hagkvæmasta máta. Hjá Baðkob starfa öflugir pípulagningarmeistarar og píparar sem sjá til þess að verkið sé unnið á faglegan og fljótan hátt.

Fagleg þjónusta

Við tryggjum vandaða vinnu, skjóta framkvæmd og áreiðanlegar lausnir fyrir hvers kyns pípulagnaverk.

Sérhæfð tækni og öflugur búnaður

Með nútímalegum tækjabúnaði bjóðum við upp á nákvæmar, hagkvæmar og öruggar lausnir, þar á meðal gólfhitafræsingar.

Af hverju að velja Baðkob?

Framúrskarandi Pípulagningarþjónusta fyrir Þitt Heimili

Hjá okkur færðu alla þjónustuna á sama stað en við höfum úr að ráða fjöldan allan af samstarfsaðilum þegar viðkemur flotun, flísalagningum og öðrum tengdum múrverkum. Við leggjum mikið uppúr því að skila framkvæmdarsvæði nánast ryklausu að loknu verki. Einnig höfum við úr að ráða öflugri rafstöð sem veitir okkur þann möguleika að þjónusta aðila á þeim svæðum þar sem erfitt kann að vera að komast í öflugar rafmagnstengingar.

Gæði
Pípulagningaþjónusta Baðkob ehf – Reykjavík
Þjónusta okkar

Almenn pípulagnaþjónusta

Hjá Baðkob ehf önnumst við alla almenna pípulagningavinnu með sterka fagþekkingu og víðtæka reynslu. Við sjáum um lausnir fyrir heimili og fyrirtæki og tryggjum áreiðanlega, faglega og vandlega þjónustu á öllum helstu sviðum pípulagna.

Baðherbergi

Við gerum heildarkostnaðaráætlun og veitum aðstoð við hönnun og uppsetningu nýs baðherbergis.

Pípulagning - uppþvottavél og vaskur uppsetning

01.

Nýlagnir og endurlagnir

Getum tekið allt frá einföldum viðgerðum á vaski yfir í heildarframkvæmdir á þinni eign.

Viðhald pípulagningar - fagleg þjónusta

02.

Drenlagnir

Við sjáum um endurnýjun á dreni og leggjum ný dren við eldri hús. Vinnum með kröftugum gröfuverktökum þannig að við náum að bjóða upp á góða heildarverðáætlun.

03.

Gólfhitafræsing

Við sjáum um gólfhitafræsingar frá upphafi til enda undir yfirumsjón pípulagningameistara.

04.

Skólplagnir

Við sjáum um lagningu og endurnýjun skólplagna frá upphafi til enda.

Pípulagningaþjónusta Baðkob ehf – Reykjavík

05.

Yfirferð á lagnakerfi

Er hita reikningurinn of hár? Við getum farið yfir kerfið og lagninar og hjálpað þér að lækka hitakostnaðinn.

Fagleg pípulagningartæki og búnaður

06.

Húsfélög
Við gerum samninga við húsfélög og sjáum um reglulegt viðhald og stærri framkvæmdir.

07.

Við tökum að okkur alls konar verkefni stór og smá.
Umsagnir

Það sem viðskiptavinir okkar hafa að segja.

Vandvirkur og frábær fagmaður- mæli 100% með

Anna Pétursdóttir

Frábær þjónusta og góðir fagmenn takk kærlega fyrir mig

Dagmar Aðalsteinsdóttir

Komið á umsömdum tíma. Verkið unnið vandlega og snyrtilega. Góð framkoma og verðáætlun stóðst!

Bjarni Þór

Jakob gerði tilboð í að leggja gólfhita hjá okkur. Allt stóðst eins og um var samið tími, verk og uppsett verð.

Hallvarður Logason

Við gerum verðmat og tilboð þér að kostnaðarlausu

Scroll to Top