Gólfhitafræsing og lagning gólfhita
Reykjavík og höfuðborgarsvæðið
Ertu að endurnýja gólf eða hitakerfi? Baðkob sér um gólfhitafræsingu og pípulagnir undir yfirumsjón pípulagningameistara.
Við metum hvort hægt sé að fræsa fyrir gólfhita í gólfið hjá þér og gerum tilboð miðað við aðstæður og umfang verksins.
Verðmat og tilboð án kostnaðar.

Hvernig fer verkið fram?
1. Gólf og aðstæður
Fyrst þarf að skoða gólfið, aðgengi og tengingu við hitakerfið. Einnig þarf að taka mið af því hvaða gólfefni á að leggja að verki loknu.
2. Fræsing og lagnir
Þar sem aðstæður leyfa eru fræstar rásir í gólfið fyrir gólfhitarör. Við gerð tilboðs er farið yfir hvort óskað sé eftir fræsingu eingöngu eða einnig lagningu og tengingu gólfhitans.
3. Frágangur
Frágangur fer eftir ástandi gólfsins og því gólfefni sem á að leggja. Baðkob vinnur með samstarfsaðilum við flotun, flísalagnir og tengd múrverk eftir þörfum.
Hvað kostar gólfhitafræsing?
Kostnaður ræðst meðal annars af fermetrafjölda, gerð og ástandi gólfs, aðgengi, undirbúningi og umfangi lagna og tenginga. Við gerð tilboðs förum við yfir umfang verksins og hvað á að vera innifalið.
Gott að láta fylgja fyrirspurn
- Staðsetning eignarinnar og áætluð stærð gólfflatarins.
- Núverandi gólfefni og hvort búið sé að fjarlægja það.
- Myndir eða teikningar og upplýsingar um hitakerfið, ef þær liggja fyrir.
- Hvaða aðrar framkvæmdir eru fyrirhugaðar og hvenær.
Algengar spurningar um gólfhitafræsingu
Hentar gólfhitafræsing öllum gólfum?
Nei, fyrst þarf að kanna gerð, þykkt og ástand gólfsins ásamt lögnum sem kunna að liggja í því. Við förum yfir aðstæður áður en ákveðið er hvernig verkið verður unnið.
Þarf að fjarlægja gólfefnið fyrst?
Það þarf að komast að undirlaginu sem á að fræsa. Því er farið yfir hvaða gólfefni þarf að fjarlægja og hver sér um það áður en vinna hefst.
Hækkar gólfið við framkvæmdina?
Við fræsingu fara rörin í rásir í undirlaginu. Endanleg gólfhæð ræðst þó líka af flotun og nýju gólfefni. Því þarf að skoða hæðir við hurðir og aðliggjandi rými áður en frágangur er valinn.
Verður mikið ryk?
Við fræsingu myndast ryk. Útsog við vélina hjálpar til við að draga úr því, en ekki er hægt að gera ráð fyrir alveg ryklausri framkvæmd. Fyrir verkið er gott að ræða hvað þarf að fjarlægja úr rýminu eða verja.
Hvenær má leggja nýtt gólfefni?
Það fer eftir undirbúningi gólfsins og þeim efnum sem eru notuð við frágang. Ef flota þarf gólfið þarf að taka mið af þurrktíma og kröfum framleiðanda gólfefnisins.
Ertu með fleiri framkvæmdir í huga?
Gólfhiti getur verið hluti af stærri endurnýjun. Skoðaðu einnig þjónustu okkar við baðherbergi og aðrar pípulagnir.
Fáðu tilboð í gólfhitafræsingu
Sendu okkur stutta lýsingu á verkefninu eða hringdu í Jakob. Við aðstoðum þig við næstu skref.